Bláskógaskóli á Laugarvatni óskar eftir að ráða í eftirfarandi stöður fyrir næsta skólaár 2018-2019
Leikskólakennari á leikskóladeild Bláskógaskóla Laugarvatni 100% staða
Umsjónarkennari á yngsta stigi
Sérkennari
Hæfniskröfur:
Leyfisbréf á viðkomandi skólastigi og /eða viðurkennda háskólamenntun sem nýtist í starfi
Áhugi á útinámi og fjölbreyttum kennsluháttum
Reynsla af teymisvinnu væri kostur
Færni í mannlegum samskiptum er mikilvæg
ART þjálfari er kostur
Jákvæðni og áhugi fyrir margbreytilegu starfi
Lausnamiðun í starfi er mikilvægur eiginleiki
Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
Bláskógaskóli á Laugarvatni er samrekinn leik- og grunnskóli í Bláskógabyggð sem leggur meðal annars mikla áherslu á samfellu á milli skólastiganna, fjölbreytta kennsluhætti og einstaklingsmiðað nám. Útinám er stór þáttur í stefnu skólans og mikilvægt er að kennarar og starfsmenn skólans upplifi tækifæri til fjölbreyttra kennsluhátta útivið.
Í skólanum er lagt áherslu á góða samvinnu allra þeirra sem starfa í skólanum. Við leggjum áherslu á að þeir sem tilheyra starfsmannahópnum upplifi hann sem eina heild. Námsumhverfi nemenda endurspeglast meðal annars í ánægðu og samstilltu starfsfólki.
Störfin henta jafnt körlum sem konum.
Umsóknarfrestur er til og með 25. júní nk.
Nánari upplýsingar veitir Elfa Birkisdóttir skólastjóri í síma: 480-3030 eða í gegnum tölvupóst elfa@blaskogaskoli.is