Margir eru búnir að fá nóg af snjónum undanfarið en nemendur Bláskógaskóla eru ekki búnir að fá nóg. Hópurinn tók sig saman og gerði marga stóra og flotta snjókarla á skólalóðinni í vikunni. Glæsilegur hópur karla af öllum stærðum og gerðum. Fleiri myndir má sjá í myndasafninu hér til vinstri.
Framundan er vetrarfrí á mánudag og þriðjudag.
Skólinn hefst aftur samkvæmt stundaskrá miðvikudaginn 4. mars.