Velunnarar
2018-2019
Björgunarsveitin Ingunn kom færandi hendi í upphafi árs og færði nemendum á leikskólastigi og í 1-2. bekk endurskinsvesti. Mikið myrkur er oft á þessum tíma og mikilvægt að nemendur sjáist vel og því er þessi gjöf mjög kærkomin. Við þökkum kærlega fyrir og gleðjumst yfir stuðningi í nærsamfélaginu.
2017-2018
Kvenfélagið kom færandi hendi og gaf leikskóladeildinni peningagjöf upphæð 100.000 kr. Gjöfin var nýtt í Vináttu verkefni barnaheilla. Nánar um það verkefni hér.
Gjöfin á eftir að nýtast mjög vel nemendum og skólanum til heilla. Kvenfélaginu færðar góðar þakkir fyrir stuðning til að efla gæði og starf skólans.
2016 – 2017
Jón Snæbjörnsson skáknefndarformaður UMFL mætti í upphafi skólaárs 2016-2017 með tvö vegleg taflborð í skólann. Taflborðin eru gjöf frá Ungmennafélagi Laugdæla (UMFL) til skólans og verða staðsett á efri og neðri hæð grunnskólans. Jón stefnir einnig að því að kíkja við og fara yfir helstu þætti skákinnar. Við þökkum UMFL kærlega fyrir að þessa góðu gjöf sem verður eflaust nýtt vel í skólahúsinu
Kvenfélagið færði grunnskóladeildinni alls 100.000 kr sem við nýttum til kaups á owerlock saumavél fyrir handavinnukennslu í skólanum. Gjöfin mun koma sér mjög vel og auka fjölbreytni í verkefnum sem unnin eru í handavinnu.
2015 – 2016
Erla Þorsteinsdóttir formaður Kvenfélags Laugdæla kom og færði leikskóladeildinni peningagjöf fyrir alls 100.000 kr.
Gjöfin var nýtt til að kaupa nýtt eldhús í hlutverkaleikinn okkar í smiðjunni. Við keyptum einnig búninga og fleira til að nýta í hlutverkaleiknum. Helmingur fjárhæðinnar var nýttur til að kaupa góða myndavél fyrir skólann. En við keyptum Canon 750D mynda og video vél sem hefur heldur betur nýst okkur vel. Við þökkum kvenfélaginu kærlega fyrir stuðninginn sem kemur sér vel.