Skólahald fellur niður vegna veðurs

Skólahald í leik- og grunnskóla fellur niður vegna veðurs 11. desember

Kæru foreldrar á leik- og grunnskóladeild,
Ákveðið hefur verið að fella niður skólahald bæði á leik- og grunnskólastigi á morgun miðvikudaginn 11. desember. Samkvæmt veðurspám sem við höfum núna má gera ráð fyrir að verðið haldi áfram og vegna snjós, ofankomu og vinds er nokkuð ljóst að ófærð verður mikil. Ekki er hægt að gera ráð fyrir að snjóruðningstæki geti farið af stað fyrr en eftir hádegi, gangi spár eftir. Almannavarnir hafa beint þeim tilmælum til fólks að halda sig inni við. Við sýnum því fullan skilning og virðum þau tilmæli og biðjum fólk að halda sig innan dyra.
Að öllu óbreyttu stefnum við á að opna skólann stundvíslega bæði leik-og grunnskóladeild 12. desember kl. 8.
Með góðri kveðju,

Elfa Birkisdóttir